
Stofnfundur Vonarinnar – hagsmunasamtaka krabbameinsgreindra var haldinn þriðjudaginn 30. janúar 2007.
Meginmarkmið samtakanna er að leita sanngjarns jafnræðis við aðra þegna íslensks samfélags varðandi félagsleg réttindi, kjör, vitneskju um lagaleg réttindi og skyldur samfélagsins við krabbameinsgreinda.
Tilgangur félagsins er að bæta hag þeirra, sem eiga við krabbamein og aðra fylgikvilla þess að stríða svo og aðstandenda þeirra.
Á stofnfundinum var Haukur Þorvaldsson kjörinn formaður til næstu tveggja ára. Að auki var kjörinn með honum sex manna stjórn og skipti hún með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi þriðjudaginn 6. febrúar sl.
| Þröstur Emilsson | varaformaður | 8228777 | the@vonin.is |
| Ármann Eiríksson | ritari | 8957433 | armann@vonin.is |
| Björk Andersen | gjaldkeri | 8690091 | bjork@vonin.is |
| Sigríður Rögnvaldsdóttur | varagjaldkeri | 8977780 | sigridur@vonin.is |
| Guðríður Eydís Búadóttir | meðstjórnandi | 8615483 | gudridur@vonin.is |
| Jónas Ragnarsson | meðstjórnandi | 6987615 | jonas@vonin.is |
Hægt er að skrá sig í félagið með því að senda póst á vonin@vonin.is eða hafa samband við einhvern ofantalinna.